Á myndinni hér að neðan er_ tillaga að nálgun við meðferð á sykursúr (ketónblóðsýring eða diabetic ketoacidosis). Myndin er úr 4. útgáfu Handbókar í lyflæknisfræði 2015 og má finna þar á bls. 174. Það má einnig styðjast við þetta við meðhöndlun hyperosmolar ástands án ketósu (HHS eða HONK). Í HHS þarf reyndar oftast talsvert minna insúlín (0,06ein/kg/klst). Í HHS þarf einnig að huga að bláæðasegaforvörn en annars vísast í handbókina.
Þessir sjúklingar þurfa mikla athygli og náið eftirlit. Helstu þættirnir sem geta farið úrskeiðis eru blóðsölt (kalíum sérstaklega) og of hröð blóðsykurlækkun er algeng.
Þessir sjúklingar þurfa mikla athygli og náið eftirlit. Helstu þættirnir sem geta farið úrskeiðis eru blóðsölt (kalíum sérstaklega) og of hröð blóðsykurlækkun er algeng.