Kirtlakver
  • Heim
  • Námslæknar
  • Skipulag
    • Starfsfólk
    • Göngudeildir
    • Ráðgjöf og tilvísanir
    • Fundir
    • Símanúmer
  • Hnútar
    • Heiladingull
    • Nýrnahettur
    • Skjaldkirtill
  • Skjaldkirtill
    • Ofvirkni
    • Vanstarfsemi
    • Amíódarón
  • Sterar við álag
  • Sykursýki
    • Greining
    • Ákefð sykurstjórnunar
    • Hár blóðsykur
    • Fótaskoðun
    • Insúlín >
      • Skömmtun
      • Skema
      • Kolvetnatalning
    • DKA og HHS
    • Meðganga
    • Tegund 2
  • Viskubrunnar
  • Snjallsímar
  • Bráð innkirtlafræði

Ráðgjöf

Ráðgjöf á innkirtladeild fer fram virka daga frá 08:00 - 16:00 í síma 2889 og er bæði fyrir Fossvog og Hringbraut. Skrifstofustjóri innkirtladeildar tekur ráðgjafasímann á dagvinnutíma og skráir beiðnir um símaráðgjöf í Sögu - A3-INK ráðgjöf. Ef beiðni er brýn  og kallað er á tafarlausa ráðgjöf er haft beint samband við ráðgefandi lækni en aðrar  fara
"í röðina"

Vaxandi sjálfstæði og ábyrgð námslæknis eykst að öllu jöfnu þegar líður fyrstu vikuna á innkirtladeild en er alltaf með vottun sérfræðilæknis. Þetta þarf sérstaklega að athuga þegar um ræðir ráðgjöf sem oft er óskað eftir óformlega gegnum síma. Að öllu jöfnu skal miðað við það að sjúklingur sé heimsóttur og vandamálið rætt við sérfræðing þann sem er á bakvakt þá vikuna áður en skriflegri ráðgjöf er skilað. 

Ráðgjöf er alltaf formleg og bókfærð, annað hvort slegið inn af námslækni eða lesið inn í FAKTA sem sérgreinaritari slær síðar inn. Geta skal þess hvaða sérfræðilæknir var með í ráðum. 

Hafa þarf í huga að símaráðgjöf til aðila utan spítala skal einnig færa til bókar með sama hætti og að ofan er getið

Óskað er eftir því að allar ráðgjafir sem svara á samdægurs, berist fyrir klukkan 11 að morgni. Deildarlæknir þarf því að hafa vakandi auga með þessum lista og myndist dauður tími, t.d. bil milli sjúklinga má vinna þennan lista niður. 

Tilvísanir

Tilvísanir berast deildinni eftir ýmsum leiðum; rafrænt og bréflega. Vakthafandi læknir fer reglulega yfir tilvísanir en þær fara fram í gegnum Heilsugátt og birtast á biðlista í Sögu. Bóka má nýja sjúklinga í samráði við ritara á A3 (s: 6331 - Bryndís) í "Brýn viðtöl" . Miða skal við a.m.k. 40 mínutna viðtal í fyrstu komu. 

Hægt er að senda skilaboð til okkar í gegnum vefsíðu deildarinnar (hentugt fyrir sjúklinga) og ritarar okkar sjá um að koma slíkum skilaboðum í réttan farveg. Netfang innkirtladeildar er:
[email protected]
Einnig má senda skilaboð til okkar í gegnum vefsíðu deildarinnar (hentugt fyrir sjúklinga) og ritarar okkar sjá um að koma slíkum skilaboðum í réttan farveg.

Hjúkrunarfræðingar deildarinnar leggja gjarnan lið við eftirfylgd sjúklinga sem stundum þarf að vera mjög þétt eftir lyfjabreytingar eða við útskrift af legudeild. Sími hjúkrunarfræðinga er 825 3651
Vefur innkirtladeildar
Powered by Create your own unique website with customizable templates.