Sykursýki af tegund 2 er algengasta tegund sykursýki
Sykursýki er í grófum dráttum flokkuð í tegund 1 og 2 en 9 af hverjum 10 sjúklingum hafa tegund 2.
Greining sykursýki snýst eingöngu um styrk glúkósa í blóði (blóðsykur) en helstu einkenni hækkaðs blóðsykurs eru þorsti, tíð þvaglát, þreyta og slen.
Insúlín er hormón framleitt í briskirtlinum og er helsta hlutverk þess að opna göng á frumuveggjum, hleypa þannig blóðsykri inn í frumurnar og lækka magn blóðsykursins í blóðinu sjálfu. Það þarf því ekki mikið hugmyndaflug til að ímynda sér að röskun á starfsemi briskirtilsins getur leitt til sykursýki. Bráð bilun kirtllisins er jú skýringin á sykursýki af tegund 1 en í tegund 2 hefur komið í ljós á síðustu árum að briskirtilsbilun er einnig kjarni málsins.
Flestir þeirra sem hafa sykursýki af tegund 2, hafa einnig aðra röskun á líkamsstarfseminni. Þetta er svokallað insúlínþol en kjarni þess er að frumur líkamans svara verr insúlíni en búast mætti við - hafa myndað þol gegn virkni eigin insúlíns. Eðlilega er brugðist við þessu með því að reyna að framleiða meira insúlín. Svo lengi sem brisið getur framleitt ofgnótt insúlíns helst blóðsykurinn eðlilegur en fyrr eða síðar "gefst brisið upp" og blóðsykurinn hækkar.
Sjá nánar á www.innkirtlar.info og í Handbók í lyflæknisfræði